Búslóðageymsla Olivers
Búslóðageymsla Olivers hefur yfir að ráða rúmgóðu geymslurými í Auðbrekku, Kópavogi. Við höfum starfað síðan 1986 við góðan orðstý og velgengni sem við eigum dyggum viðskiptavinum að þakka.
Fáeinar staðreyndir:
- Geymslurýmið er um 800 fermetrar
- Staðurinn er upphitaður og vaktaður allan sólarhringinn
- Búslóðir eru geymdar á brettum (80x120 sm.) til að auðvelda alla meðferð
- Hvert bretti er vandlega innsiglað með sterkum plastfilmum
- Við sækjum allar búslóðir sjálfir og göngum frá þeim á bretti á staðnum
- Engum er hleypt inn á svæðið að starfsmönnum undanskyldum
Ferli geymslu
Þú hringir í okkur og pantar geymslu fyrir búslóðina. Við komum okkur saman um hentugan tíma til að sækja hana. Lengri fyrirvari tryggir þjónustu. Bílstjórinn raðar búslóðinni á bretti með þér og innsiglar á staðnum. Því næst er búslóðinni ekið í geymsluna, og þar vandlega gengið frá henni í sal á merkt stæði. Flutningsgjald er greitt sérstaklega eftir hefðbundnum töxtum.
Ýmis fróðleikskorn
Í valmyndinni til hægri má finna tengla í aðrar síður sem innihalda meðal annars upplýsingar um hvernig best sé að ganga frá búslóðum áður en við tökum við þeim. Einnig er hér einföld reiknivél sem áætlar geymslugjald og fjölda bretta út frá stærð íbúðar í fermetrum.