Gjaldskrá
Greitt er fyrir fjölda bretta í geymslu. Hvert bretti tekur 2 rúmmetra, og fyrir brettið greiðast 4.500 kr. mánaðarlega. Hér fyrir neðan má sjá einfalda töflu sem hafa má til hliðsjónar við útreikning mánaðargjalds miðað við úr hversu stórri íbúð er verið að flytja. Taflan er byggð á reynslu okkar í gegnum tíðina. Eignir manna eru eins fjölbreyttar og þeir eru margir. Því eru þessar tölur aðeins leiðbeinandi, en ekki ákveðnar upphæðir.
Frá 10 upp í 70 fermetra íbúð má gera ráð fyrir einu bretti á hverja 10 fermetra úr íbúðarhúsnæði. Eftir það fara tölurnar jafnan reikandi. Í vel fylltum geymslum og bílskúrum má hinsvegar gera ráð fyrir allt að einu bretti á hvern fermetra.
| Fermetrar | Bretti | Upphæð |
|---|---|---|
| 10 | 1 | 4.500 kr. |
| 20 | 2 | 9.000 kr. |
| 30 | 3 | 13.500 kr. |
| 40 | 4 | 18.000 kr. |
| 50 | 5 | 22.500 kr. |
| 60 | 6 | 27.000 kr. |
| 70 | 7 | 31.500 kr. |
| 80 | 8 - 9 | 36.000 - 40.500 kr. |
| 90 | 9 - 10 | 40.500 - 45.000 kr. |
| 100 | 10 - 12 | 45.000 - 54.000 kr. |
| 110 | 11 - 13 | 49.500 - 58.500 kr. |
| 120 | 12 - 14 | 54.000 - 63.000 kr. |